Væntanlegt
Allt sem þú þarft til að reka leiguna.
Flotastjórnun, verðlagning, bókanir, innritun og dreifing, hannað í kringum daglegt starf á afgreiðsluborðinu.
Hvað kerfið gerir
Allir bílar og bókanir á einni síðu. Raðarinn úthlutar bílum á bókanir um leið og þær berast, fylgir reglunum sem þú setur og heldur utan um flutninga bíla milli afgreiðslustaða.


Viðskiptavinir innrita sig í símanum áður en þeir koma, eða á sjálfsafgreiðslustöð, iPad í afgreiðslunni. Þeir skrá upplýsingar og myndir af ökuskírteini, undirrita samninginn og greiða. Á sjálfsafgreiðslustöð er líka hægt að sækja bíl utan opnunartíma.
Afhending og skil með kílómetrastöðu og eldsneyti, tjón skráð með myndum, aukagjöld, tryggingarfé og greiðslur, og undirritaður samningur.
Verðskrár, tímabil og verð eftir bílaflokki og leigutíma, sér verðskrá fyrir hverja sölurás, afslættir og afsláttarkóðar, og virðisaukaskattur reiknaður í hverri línu.
Kaskó og vátryggingar með sjálfsábyrgð eftir tegund tjóns, höfnun trygginga skráð og undirrituð, og tryggingarféð sem af því leiðir.
Tjón merkt á teikningu af bíl, jeppa eða sendibíl, viðgerðir fyrir hvern bíl, og dagarnir sem bíll er úr umferð dregnir frá framboði.
Hver sölurás selur eftir sinni verðskrá. Samningar með þóknun eða nettóverði, mánaðarleg uppgjör, og API með webhooks fyrir bókunarsíður. Tenglar samstarfsaðila rekja bókanirnar sem vefsíða sendir þér.
Tekjur, bókanir og nýting flotans fyrir stillanleg tímabil, hægt að bera saman við fyrri tímabil, og vista sem Excel, CSV eða PDF skrár.

Íslenska og enska
Allir skjáir eru á báðum málum. Hver og einn velur sitt, og viðskiptavinurinn fær samninginn á sínu máli.
Í hvaða síma sem er
Allir skjáir passa í síma, í afgreiðslunni, á planinu og á verkstæðinu.
Leiðsögn frá byrjun
Uppsetningin leiðir nýja leigu í gegnum afgreiðslustaði, bílaflokka, bíla, verð og sölurás. Eftir hvert skref stingur spjald upp á því næsta.
Rekur þú bílaleigu?
Við erum að taka inn nokkrar leigur fyrir opnun. Sendu okkur línu og við sýnum þér hvar kerfið stendur.
hello@mellow.isErt þú endursöluaðili?
Bókunarsíður, ferðaskrifstofur og ferðaþjónustuaðilar geta bókað í gegnum API-inn okkar. Hafðu samband um aðgang og samstarfssamninga.
partners@mellow.is
